Góðir
lesendur...við
erum hér saman komin í tilefni af 10 ára afmæli Sparisjóðs
Norðlendinga. Jájá það má með sanni segja að þessi banki hafi
svo sannarlega umturnað lífi margra Akureyringa þegar hann
var reistur hér í
miðbænum.
Nei ókei spaug. Ég var samt að vinna á
þessari afmælishátíð í gær...og ég eiginlega get ekki sagt að
það hafi verið neitt brjálað stuð. Nema þá voru
Laddi og
Örn
Árna alveg hrikalega fyndnir á köflum

Greyið krakkarnir föttuðu oft ekki baun í bala en
ákváðu bara að hlægja/hlæja því þau sáu fullorðna fólkið (þar
á meðal
MIG)
hlægja/hlæja

haha
Vá þessi helgi er búin að vera
svo lúmskt mikil
eyðslu-helgi
sko. Ég er búin að fara
TVISVAR
sinnum út að borða, og ég er eiginlega ekki þannig týpa sem gerir
það oft og svo er ég búin að taka bensín sem ég geri aldrei, eða
borga alla veganna aldrei fyrir, og bara e-ð rugl sko

Svona bara
fer maður í ham þegar maður á pening
Annað líka skemmtilegt er að ég var að keyra bjölluna mína hana
Bellu í fyrsta skiptið
EIN í
gær
Vá það var svooo góð
tilfinning og ekkert smá gaman sko

þetta bleika babe er bara
sætt finnst mér sko


Við Júlía og Fanný vorum alveg að missa
okkur í gær á rúntinum...
djí
Hahaha Og síðan er sko ekkert útvarp
í henni, eða það er eitt aftur í en það er sem sagt ekki í
sambandi...svo við bara reyndum að kippa því í liðinn með því að
syngja bara sjálfar og halda þannig uppi stemmingunni í bílnum...og
það gekk bara ágætlega sko...en ef þið þarna úti eigið
þráðlaust batteríisgangandi útvarp sem þið mynduð vilja
dóneita þá bara endilega
hafið samband

heheh
Svo er ég bara búin að vera ein
heima um helgina því gamla settið fór suður að hjálpa Björk (systur
minni) að flytja...og þau koma ekki heim fyrr enn e-n tíman á
morgun svo ég þarf að vakna
ALVEG sjálf á morgun í vinnuna og ég hef
svooo litla trú á mér í það verkefni að það er bara
djók
ég er hrikalega
léleg í því...ég er þannig að mig langar
ALLTAF að sofa lengur

Og svo er
annað...mér finnst líka svo leiðinlegt að ganga frá eftir mig
hérna heima...að ég þarf aldeilis að bretta upp ermarnar á
morgun og laga brjálað til því það er bara e-ð drasl eftir
mig út um
ALLT
Úff svo er bara leikur á
þriðjudaginn...á móti Stjörnunni í mfl.
Spennó
Og viljið þið
GJÖRA SVO VEL að
MÆTA og hvetja okkur
Vá ég nenni svo ekki að fara að sofa
og ég hef svo feitast EKKERT að segja að það er bara ekki
fyndið
Alveg makalaust...en hmmm...á morgun rennur einn af
skemmtilegustu dögum ársins í garð...eða hann er eiginlega bara
kominn í garðinn...en þetta er enginn annar en afmælisdagurinn
hennar
Júlíu. Svo þið sem annað
hvort ekki munduð eftir því eða vissuð ekki af því gjörið svo vel
að óska þessari
skvísu til
hamingju með afmælið. Og jújú auðvitað þið sem líka vissuð þetta
Heyriði ég var
reyndar að spá aðeins í svona
skemmtiferðaskipum....hvað haldiði eiginlega að það kosti fyrir par
að fara saman í svona ferð kannski til dæmis um
Karabískahafið?? Mig myndi alveg þvílíkt
langa að fara í svona siglingu með
“kæró”
einhvern tíman...bara spurning um kostnaðinn sko

kannski maður
ætti bara að fara að spara strax sko

Reyndar er ég frekar smeik
við svona stór skip auðvitað eftir að hafa séð Titanic...skipið sem
ALDREI átti að sökkva
...sérstakt....
Guð þetta er komið gott...ég er
bara komin með agalgan svefngalsa...held að ég ætti kannski bara að
drífa mig í bælið eins og hvert annað barn og hætta að láta eins og
einhver nátthrafn...það er ekkert hollt til lengdar. Og það er held
ég barasta líka komið nóg af rugli saman í eitt blogg...þetta er
bara saman safn af tómri steypu og ómerkilegu blaðri.
Æði.
Góða nótt gríslingar